Chains
Chains línan var hönnuð með nútímakonu í huga. Í línunni er að finna keðjur sem tengja ýmist hluti saman eða bara sem skraut til að gefa gripnum meiri hreyfingu.
Tímalaus hönnun sem endist
Handgert í Reykjavík
-
Átakafríir gimsteinar
Demantar okkar og gimsteinar koma frá söluaðilum sem selja átakalausa steina. Þetta þýðir að blóðdemantar eru ekki í boði og að fólkið sem vinnur hörðum höndum við að ná gimsteinunum fái sanngjarna meðferð.
-
Endurunnið gull
Við leggjum áherslu á að nota aðeins endurnýtt/endurunnið gull og silfur við framleiðslu á skartinu okkar. Þetta er mikilvægur hluti af framtíðarsýn okkar þar sem gullauðlindir heimsins munu á endanum tæmast.