1 af 4

Átakafríir gimsteinar og endurunnið gull

Tímalaus hönnun sem endist, handsmíðuð í Reykjavík

Gjafahugmyndir

Gildin okkar

Við leggjum áherslu á að nota aðeins endurnýtt/endurunnið gull og silfur við framleiðslu á hlutunum okkar. Þetta er mikilvægur hluti af framtíðarsýn okkar þar sem gullauðlindir heimsins munu að lokum tæmast.
Það fallega við gull og silfur er að það er alltaf hægt að bræða það og nota í nýtt verkefni, nýjan Hik&Rós skartgrip.

Það sem við eigum við þegar við segjum endurunnið gull og silfur er að málmurinn er bræddur í fljótandi formi, hreinsaður, síðan bræddur aftur og hellt í plötumót. Voila! Nýtt, gamalt gull.

Annað sem skiptir okkur sköpum er að demantarnir og gimsteinarnir sem við kaupum koma frá söluaðilum sem selja átakafría steina. Sem þýðir að blóðdemantar eru ekki í boði og að fólkið sem vinnur hörðum höndum við að ná gimsteinunum fái sanngjarna meðferð.